Á fundi Málfrelsis ræddi ég um tvö samofin málefni: innflytjendamál og stríðið í Palestínu. Í ræðunni varpa ég ljósi á hvernig hugtök geta verið misnotuð til að þagga niður gagnrýni, hvernig tvöfaldur mælikvarði mótar umræðuna og hvernig sú orðræða tengist bæði rasisma hér heima og mannréttindabrotum á alþjóðavettvangi.
Félagið Málfrelsi hélt fund sl. laugardag undir yfirskriftinni: Er stjórnleysi á landamærunum að valda neyðarástandi á Íslandi? Í inngangserindi sínu lagði Svala Magnea Ásdísardóttir, formaður félagsins, áherslu á að markmið Málfrelsis væri að skapa vettvang fyrir opna umræðu án þöggunar og fordóma. Hún tengdi umræðu um innflytjendamál á Íslandi við víðara samhengi orðræðu og hugtakanotkun…
"Þegar ég varði Ísrael varð ég fyrir áköfum árásum frá Palestínu-sinnuðum nettröllum sem stimpluðu mig sem „síonískan stuðningsmann þjóðarmorðs“. Nú hef ég fengið yfir mig sambærilegan skæting og hótanir frá Ísraels-sinnuðum tröllum sem kalla mig „gyðingahatandi andsemítista“. Hvernig get ég verið hvort tveggja?"
Krossgötur.is eru ritmiðill samtakanna Málfrelsi og þar höfum við í ritnefnd skrifað greinar reglulega sl. 2,5 ár, ásamt því að halda viðburði og taka þátt í þjóðfélagsumræðunni með því að gefa kost á okkur í viðtöl, skrifa skoðanagreinar á helstu fréttamiðlum landsins og fleira. Félagið Málfrelsi var stofnað haustið 2022 af nokkrum hvatamönnum og með…
Málþing félagsins Málfrelsi, með yfirskriftinni „Framtíð blaðamennskunnar - stefnumótandi afl eða gagnrýnin upplýsingamiðlun“, var haldið í lestrarsal Þjóðminjasafnsins þann 11. janúar sl. Svala Ásdísardóttir, formaður félagsins Málfrelsi og ritstjóri Krossgatna ávarpaði fundinn og fagnaði sigri yfir að komin sé viðurkenning á stórfelldri þöggun sem reið yfir samfélagsmiðla í faraldrinum, sbr. yfirlýsingu Mark Zuckerberg, forstjóra Meta/Facebook.…
Í vikunni tóku ísraelsk stjórnvöld þá ákvörðun að útiloka stuðning við og beita refsiaðgerðum gegn elsta og stærsta dagblaði Ísraels; The Haaretz, vegna fréttaflutnings og skoðanagreina sem hafa birst í blaðinu í tengslum við tortímingarherferð og ólöglegt hernám Ísraelshers gagnvart Palestínumönnum. Forsætisráherra Ísraela; Benjamin Netanyahu, áður þekktur sem Benzion Mileikowsky, lagði blessun sína yfir frumvarpið…
Mark Zuckerberg, forstjóri Facebook, lýsti nýlega eftirsjá vegna þess hvernig fyrirtæki hans gekk að kröfum alríkisstjórnarinnar um að ritskoða gagnrýni á Covid-stefnu Biden-stjórnarinnar. En er Facebook virkilega að hefja tímabil tjáningarfrelsis í anda "Fagra nýja heimsins"? Facebook tilkynnti mér á sunnudagsmorgni að fyrir átta árum síðan hefði ég birt tengil á grein mína í Washington…
Kannski er kominn tími til að leyfa rógburð og mannorðsárásir, afleiðingalaust. Slíkt fellur hvort eð er yfirleitt bara í frjósaman jarðveg ef ásökunin hefur meira að bak við sig en illkvittinn huga. Undantekningar frá þessu finnast vissulega í sögunni, en þá hefur atbeini stjórnvalda eða ráðandi afla ávallt leikið lykilhlutverk.
Einhverjum kann að finnast þetta ólýðræðislegt og brot á athafnafrelsi fólks sem vill fá að syngja í kór þrátt fyrir að geta ekki sungið. Kannski er eitthvað fasistalegt við það að fara í sérstaka söngprufu til að skera úr um það hvort viðkomandi geti sungið eða ekki áður en aðgangur að kórnum er gefinn. Falska fólkinu er vitanlega brugðið yfir þessari miskunnarlausu slaufun. Er þetta ekki bara þöggun, útilokun og eitthvert hatur gagnvart þeim?
Lítið lát er á dauðsföllum og ljóst er að langtímaskaði Covid-19 mRNA bóluefnanna er meiri en svartsýnustu menn óttuðust. Að stinga höfðinu í sandinn og draga úr eða tefja upplýsingagjöf um fjölda látinna er ekki neinum til gagns og hjálpar ekki sköðuðum. Mikilvægt er að heilbrigðisyfirvöld og heilbrigðisstéttir horfist í augu við heilsufarsvandamálin sem bóluefnin…
Um helgina sótti ég fund fólks sem beitir sér í þágu málfrelsis og gegn hvers kyns þöggun. Þessi hópur sem orðinn er allstór stendur að stofnun sem við köllum á ensku Institute for the Public Interest, skammstafað IPI. Á íslensku væri heitið Stofnun í þágu almannahags. Upphaflega spratt þetta samstarf úr baráttu fyrir frelsun Julian…