Tjáningarfrelsi er meira en bara lagaleg meginregla; það er undirstaða mannlegra framfara. Það er það sem gerði samfélögum mögulegt að þróast, hugmyndum að fá umræðu og óréttlæti að verða afhjúpað. Án möguleikans á að ögra yfirvöldum getur ekkert samfélag talist frjálst í raun og veru.
Það er hins vegar áfram stórt áhyggjuefni hvernig risafyrirtæki sem njóta náttúrulegrar einokunarstöðu hafa tök á að stýra umræðunni, stjórna því hvort og hvernig efni hefðbundinna fréttamiðla er komið á framfæri, draga notendur inn í bergmálshella og móta afstöðu þeirra, yfirleitt á grundvelli ógagnsærra algríma.
Krossgötur.is eru ritmiðill samtakanna Málfrelsi og þar höfum við í ritnefnd skrifað greinar reglulega sl. 2,5 ár, ásamt því að halda viðburði og taka þátt í þjóðfélagsumræðunni með því að gefa kost á okkur í viðtöl, skrifa skoðanagreinar á helstu fréttamiðlum landsins og fleira. Félagið Málfrelsi var stofnað haustið 2022 af nokkrum hvatamönnum og með…
Málþing félagsins Málfrelsi, með yfirskriftinni „Framtíð blaðamennskunnar - stefnumótandi afl eða gagnrýnin upplýsingamiðlun“, var haldið í lestrarsal Þjóðminjasafnsins þann 11. janúar sl. Svala Ásdísardóttir, formaður félagsins Málfrelsi og ritstjóri Krossgatna ávarpaði fundinn og fagnaði sigri yfir að komin sé viðurkenning á stórfelldri þöggun sem reið yfir samfélagsmiðla í faraldrinum, sbr. yfirlýsingu Mark Zuckerberg, forstjóra Meta/Facebook.…
Félagið Málfrelsi boðar til opins fundar í sal Þjóðminjasafnsins við Suðurgötu næstkomandi laugardag 11. janúar klukkan 14. HVER ER FRAMTÍÐ FRÉTTAMENNSKU?- stefnumótandi afl eða gagnrýnin upplýsingamiðlun? Svala Magnea Ásdísardóttir formaður Málfrelsis setur fundinn. Kristinn Hrafnsson fjallar um baráttu Julian Assange og Wikileaks og áhrifin á fréttamennsku til framtíðar. Birgir Guðmundsson, prófessor í fjölmiðla- og stjórnmálafræði…
Jafnvel persónuleg reynsla var stimpluð sem „rangupplýsingar“ ef hún stóðst ekki kröfur trúboðanna – og þetta náði fáránlegu stigi þegar umræða um ritskoðunina sjálfa varð tilefni ritskoðunar.
Í vikunni tóku ísraelsk stjórnvöld þá ákvörðun að útiloka stuðning við og beita refsiaðgerðum gegn elsta og stærsta dagblaði Ísraels; The Haaretz, vegna fréttaflutnings og skoðanagreina sem hafa birst í blaðinu í tengslum við tortímingarherferð og ólöglegt hernám Ísraelshers gagnvart Palestínumönnum. Forsætisráherra Ísraela; Benjamin Netanyahu, áður þekktur sem Benzion Mileikowsky, lagði blessun sína yfir frumvarpið…
Mark Zuckerberg, forstjóri Facebook, lýsti nýlega eftirsjá vegna þess hvernig fyrirtæki hans gekk að kröfum alríkisstjórnarinnar um að ritskoða gagnrýni á Covid-stefnu Biden-stjórnarinnar. En er Facebook virkilega að hefja tímabil tjáningarfrelsis í anda "Fagra nýja heimsins"? Facebook tilkynnti mér á sunnudagsmorgni að fyrir átta árum síðan hefði ég birt tengil á grein mína í Washington…
Það er ótrúlegt en satt að nú hefur þjónustan Archive.org, sem hefur verið til síðan 1994, hætt að skrásetja allt efni á vefnum. Í fyrsta skipti í 30 ár hefur nú liðið langur tími, — allt frá 8.–10. október — án þess að þessi þjónusta hafi afritað efni á netinu í rauntíma.