Posted inGagnrýnin hugsun Menning Tjáningarfrelsi
Endurmenntun
Brottrekstur Kristjáns Hreinssonar frá Endurmenntun HÍ er klassískt dæmi um það sem gerist þegar greinarmunurinn á umræðu á einkalegum vettvangi, svo sem í starfi, og umræðu á opinbera vettvangnum er ekki virtur. Þennan greinarmun taldi heimspekingurinn Immanúel Kant grundvallarforsendu upplýsts samfélags.











