Þegiði!

Eftir erfiðan vetur, þar sem ég stóð í ströngu á mörgum vígstöðvum, hafði ég þörf fyrir að komast út í óbyggðirnar til að hlaða batteríin í friði og ró, fjarri öllum skarkala. Eftir langt ferðalag komum við seint á veiðisvæðið. Í tilhlökkun gengum við niður að vatninu en þar mætti okkur þessi hörmulega sjón (sjá mynd); álft sem dýrbítur hafði bitið á barkann. Þótt syni mínum væri nokkuð brugðið sofnaði hann áreynslulaust og svaf vært alla nóttina. Í æsku sinni heldur hann kannski að þetta sé venjuleg sjón við bakka íslensks heiðarvatns. Kannski er ég viðkvæmari en hann, en þar sem ég hafði áður upplifað friðsælt fuglalíf fylltist ég mögulega meiri óhug en hann, a.m.k. svaf ég órólega og hrökk upp um miðja nótt við martröð, þar sem mér þótti grænklæddur maður standa uppi á Gullsteini ofan við kofann og hrópa með gjallarhorni yfir auðnina sama orðið aftur og aftur: „Þegiði!“.

Sveittur og órólegur lá ég kyrr og hlustaði ég eftir fuglunum í nóttinni, en heyrði ekkert, alls ekkert. Ekkert lauf bærðist, engin kind jarmaði, enginn fugl tísti. Kannski var það einmitt þessi drungalega þögn sem hafði vakið mig. Ég hlustaði eftir fallegasta nætursöng íslenskra heiða, þ.e. söng himbrimans, sem ekki lét heldur í sér heyra. Yfir mig helltust ónot sem héldu fyrir mér vöku lengi nætur.

Þegar ég sneri aftur til byggða, kveikti á útvarpi, las blöð og fréttir, helltust yfir mig sömu ónot. Gjallarhorn valdhafanna glymur í Ríkisútvarpinu, á Google, youtube, facebook o.s.frv. Skilaboðin eru þau sömu: „Þegiði!“. Unga fólkið telur þetta kannski eðlilegt, mögulega jafnvel réttmætt í nafni öryggis. Spurning mín er þessi: Af hverju segir eldra fólkið ekkert, kynslóðirnar sem lifað notið hafa frelsis til orðs og athafna í öruggu skjóli fyrir viðurstyggilegum stjórnarháttum alræðisstjórna 20. aldarinnar? Getur verið að Solzhenitsyn hafi haft rétt fyrir sér þegar hann, í ávarpi í New York árið 1975, varaði Vesturlandabúa við andvaraleysi í þessum efnum með eftirfarandi orðum: 

Getur einn hluti mannkyns lært af biturri reynslu annarra? Er mögulegt eða ómögulegt að vara einhvern við hættu? […] Stærilátir skýjaklúfarnir benda til himins og segja „Slíkt mun aldrei gerast hér. Þetta mun aldrei henda okkur. Það er ómögulegt í okkar heimshluta“.

Solzhenitsyn varpaði fram spurningu árið 1975, djúpt í sál hins vestræna heims til að kanna hversu djúp hún er: Getur verið að við munum ekki átta okkur á hættunni fyrr en á þeirri stundu sem hnífsblaðið leggst að hálsinum á okkur? Erum við svo græskulaus, svo skilningsvana, svo andvaralaus, að við ímyndum okkur að vargurinn nái ekki til okkar og leggjum höfuð undir væng án þess að nokkur standi vörð um líf okkar gagnvart ógnvaldinum sem vill þagga niður í okkur?

Á síðustu misserum gerðust mjög alvarlegir atburðir sem gjörbreyttu sambandi ríkis og borgara: Undir yfirskini sóttvarna og neyðarástands voru stjórnarskrár teknar úr sambandi, stjórnarfarið afbakað og mannréttindi fótum troðin í því skyni að innleiða nýtt stjórnarfar fámennisstjórnar, sérfræðingaræðis og ofríkis, allt undir því yfirskini að yfirvöld væru að „vernda“ þegna sína þegar þau í raun voru að grafa undan því stjórnskipulagi sem þeim var þó falið að verja. 

Hvað þarf til að Íslendingar (og aðrar vestrænar þjóðir) átti sig á aðsteðjandi hættu og skipi menn í það hlutverk að hafa vörð á þeim sem vilja þagga niður í okkur, valsa um sem handhafar sannleikans og eru jafnvel reiðubúnir að bíta okkur á barkann ef með þarf?

Vöknum við þegar fyrirmyndarríkið Noregur læsir mann inni á geðdeild fyrir að efast um gagnsemi töfralyfja? Vöknum við þegar ESB vill skikka aðildarríkin til að stofna „sannleiksráðuneyti“ (í anda 1984) til að berjast gegn ,,upplýsingaóreiðu“ og hugsanaglæpum?

Í réttarríki ná lögin jafnt til allra. Í alræðisríkjum er þetta viðmið stokkað upp og framkvæmdavaldinu falið umboð til að nota lögin eins og sleggju gegn almenningi. Í verstu tilvikum afhjúpast þetta í því að fjölmiðlar, sérfræðingar, ráðherrar o.fl. snúast gegn réttarríkinu og skírskota til laga í því skyni að halda borgurunum í skefjum. Þegar svo er komið er réttarríkishugtakið ekki lengur hornsteinn réttarverndar, heldur er slíkum sjónarmiðum sópað í burtu í nafni laganna! Í Orwellísku þjóðfélagi, þar sem stríð er friður og svart er hvítt, þar eru lögin notuð til að mylja réttarríkið í frumeindir. 

Frammi fyrir öllu þessu þarf að minna á að enginn er hafinn yfir lögin og að lögunum er með sama hætti ætlað að verja alla jafnt, líka þá sem eru leiðinlegir, þá sem efast og þá sem voga sér að spyrja leiðinlegra spurninga.

Í heilbrigðu samfélagi leyfist mönnum að eiga rödd. Margradda kór hljómar betur í sumarnóttinni en þrúgandi þögn þar sem enginn þorir að bæra á sér af ótta við ógnvaldinn sem fyrirskipar öðrum að þegja.

1 Comment

  1. Grímur

    Ég lagði á mig að gúggla þetta Trond Harald Håland dæmi af því að ég er ágætur í norsku og veit að það er virk umræða um allt sem snertir covid faraldurinn í Noregi. Mér fannst furðulegt að þeir færu að leggja mann á geðsjúkrahús út af afstöðu til bólusetninga vegna þess að það er hátt til lofts í umræðunni eins og þeir kalla það þegar fólk fær að tala frítt. En það er vissulega til fólk sem vildi fá meira pláss í umræðunni, rétt eins og hér.

    Eftir að hafa skoðað það sem fram hefur komið og færslurnar sem hann skrifaði finnst mér satt að segja mun nærtækari skýring að einhverjum sem þykir vænt um hann hafi runnið til rifja ástandið og komið honum undir lækna hendur en að stjórnvöld hafi ætlað að þagga niður í manni með óþægilegar skoðanir.

    Trond er með opinn facebook prófíl og honum lá margt á hjarta dagana áður en hann var lagður inn. Hann póstaði að sögn 106 sinnum á facebook 18. júlí og 20 sinnum frá miðnætti til kl. þrjú aðfararnótt 19. júlí, en ég geri ráð fyrir að hann hafi verið lagður inn í kjölfarið. Póstarnir tóku fyrir mörg og margvísleg málefni eins og t.d. gay pride, loftslagsmál, kjötát, WTO, fólksfækkunaráætlun CIA, löggæslumál í Frakklandi, covid, umferðina, orkumál, Jordan Peterson, Klaus Schwab og Justin Trudeau. Bólusetningar eru þarna líka en ekki jafn áberandi og loftslagsbreytingar enda voru þær mjög í fréttum í júlí.

    Hann póstaði t.d. sömu myndinni af brennandi veðurkorti þrisvar í röð og skrifaði þetta:
    1. Allt verður í lagi ef þú gefur geðsjúklingunum öll völd og alla peningana þína og lætur þá drepa þig. Forðastu svo ofsa hitastig eins og þetta við Miðjarðarhafið í júlí 🤡🤣🤡🤡🤡🤡🤡
    Bleyjugengið hættir aldrei að koma á óvart. Bara fleiri voðaverk frá þeim framvegis..þeir klikkuðust alveg þeir geta ekki séð neina rökfræðilega galla. Eitt og eitt vinsælt mál sem þeir keyra ákaft. Nýkomin úr ofsafengnum pride mánuði, þá kemur þetta bull. 🤡🤡🤡🤡🤡🤣🤣🤣
    2. Bleyju og sjálfboðaliðagengið má borða skordýr til að breyta þessu strandveðri og sunnanveðrinu sem kemur frá beljuprumpi. Þeir fá að borga aflát fyrir CO2. En ég ætla ekki að sætta mig við neitt úr þessum fáránlega hópi. Síðasta helför núna ný helför með bóluefnum. Fáránleikar enda í voðaverkum..voltaire sagði eitthvað um það. Heimsk þjóð. Takmarkalaust skammarlegt. Átakanlegt að þetta er meirihluti fólks.
    Comic Ali var fulltrúi yfirvalda..og alræðisstjórna, svo það er brjálað hvað þeir eru að reyna núna. Það eru margir sem eiga skilið það sem kemur, lítill hópur sem hefur gert sitt..þeir eitthvað annað með. Restin getur brunnið í þessu strandhelvíti fyrir sunnan fyrir mér. Ég er búinn að fá nóg af þeim núna. Þetta er alveg sjúkt..
    3. Sjáðu hvað það er. Þá leysa þeir þetta bara ef þeir fá völd og peningana þína. Þetta getur ekki virkað evjf á fólk.. covid síðan þetta. Ekki gleyma pride og öðru sem er í gangi. Vatnsafl er ekki grænt þótt það losi ekki CO2. En þeir geta varla náð þessu fram. Það er alveg sjúkt eins og Comic ali. Hugsanleg einkenni alræðisstjórna þetta.
    Þetta er úr Google Translate og með örfáum leiðréttingum sem ég gerði þegar GT var alveg út í skurði en ég fullvissa þig um að færslurnar eru alveg jafn samhengislausar á norsku.

    Ég ætla ekki að gera lítið úr sársaukanum sem fylgir því að vera lagður inn á geðdeild með valdi enda hefur verið mikil umræða um þess háttar mál á Íslandi síðustu ár. En það kemur fram í viðtali sem document.no tók við Trond að ákvörðunin um að leggja hann inn með valdi byggir m.a. á greiningu geðlækna sem hafði verið gerð á honum áður („De hang seg opp i en gammel diagnose, og da er spørsmålet: Kan de bare hente frem noe som ligger skrevet et sted, og så storme leiligheten med politi?…“).

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *