Stóru fjölmiðlarnir eru á fallanda fæti

Traust almennings til fjölmiðla á Vesturlöndum hefur verið í frjálsu falli síðustu ár. Þetta kemur m.a. fram í könnunum þar sem spurt er hvort fólk telji fréttamiðla vera óháða gagnvart þrýstingi frá stjórnmálum og ríkisvaldi. Í Bretlandi og Bandaríkjunum gætir stöðugt vaxandi vantrausts til stóru fjölmiðlanna. Í leit að skýringum má telja mestar líkur á að þetta megi rekja til þess að almenningur telji stóru fjölmiðlana vera málpípur eigenda sinna og ráðandi afla, enda geti bæði valdhafar og fjölmiðlar haft gagnkvæman hag af því að afvegaleiða umræðu, beita hræðsluáróðri o.fl.

Öfugt við áherslur Ritskoðunarnefndar (afsakið, Fjölmiðlanefndar) sem hvetur fólk til að trúa helst ,,stórum og rótgrónum fjölmiðlum” þá leitar almenningur á Vesturlöndum í síauknum mæli að upplýsingum frá litlum, óháðum og einkareknum fjölmiðlum, sem blessunarlega hafa sprottið upp víða um heim sem andóf gegn þeirri einsleitni, ritskoðun, miðstýringu og skoðanamótun sem vestræn stjórnvöld í samstarfi við ,,stóra og rótgróna fjölmiðla” færa nú grímulaust fram undir flaggi falsfrétta, upplýsingaóreiðu o.fl. 

Þótt öllum sé vissulega frjálst að leggja fullkomið traust á einsýna og pólitíska fréttastofu RÚV og neita að hlusta á aðrar útvarpsstöðvar, þá tilheyrir slíkt hugarfar liðinni tíð, enda er það engin dyggð að hafa lokaðan huga. 

Fyrir þá sem vilja fá að heyra aðra hlið en þá sem glymur í RÚV og öðrum ,,stórum og rótgrónum fjölmiðlum” þá leyfi ég mér auðmjúklegast að hvetja lesendur til að hlusta á þetta samtal hér og beita svo eigin dómgreind til að kynna sér þær reglur sem hér um ræðir … og kalla eftir því að kjörnir fulltrúar okkar geri slíkt hið sama. 

Comments

No comments yet. Why don’t you start the discussion?

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *