„Ég er ekki ég, ég er annar“

Ég rakst um daginn á auglýsingu frá ansi hreint sniðugu sænsku fyrirtæki, sem hefur þróað gervigreindarlausn sem sendir út tölvupósta og skilaboð, svarar og bókar sölufundi, allt í nafni nafngreindra sölufulltrúa. Þetta fyrirtæki virðist fara vel af stað og mikill áhugi á þjónustunni. Það kemur ekki á óvart, enda mikill ávinningur af sjálfvirkninni.

Þetta er afmarkað svið, en langt í frá það eina þar sem slíkar lausnir munu ná fótfestu og eru nú þegar teknar að ná henni. Innan skamms verður orðið algengt að fólk láti gervigreind ekki aðeins skrifa og svara tölvupóstum og öðrum skilaboðum í eigin nafni, heldur einnig að líkja eftir eigin rödd í símtölum og líkja bæði eftir eigin rödd og persónu á fjarfundum. Þannig verður hægt að margfalda eigin afköst með því að afrita sjálfan sig. „Ég er ekki ég, ég er annar“ söng Megas forðum. Það verða brátt orð að sönnu.

Hvar liggja mörkin milli einstaklingsins og afritsins?

Eftirlíkingar í krafti gervigreindar eru annars eðlis en þær sem við höfum þekkt til þessa, því gervigreindarlíkönin eru bæði mjög vel fær um að líkja eftir ritstíl og þess vegna talanda einstaklinga og auðvelt er að mata þau með upplýsingum sem gera eftirlíkinguna trúverðuga. Fyrst um sinn má búast við að slíkar eftirlíkingar verði helst notaðar í starfstengdum tilgangi, en það á eftir að breytast fljótt. Innan skamms má gera ráð fyrir að fólk noti slíka möguleika einnig í persónulegum samskiptum. 

Vandinn er að þau okkar sem nýta tæknina á þennan hátt geta fljótt hætt að vita nákvæmlega hvað hefur verið sagt og gert í þeirra nafni og hvaða skilaboðum hefur verið komið á framfæri við eftirmyndina. Á endanum grundvallast sjálfsmynd einstaklingsins og sú mynd sem aðrir hafa af honum á þeim samskiptum sem hann á við samferðafólk sitt og þeim endurminningum sem á þeim byggja. Freistingin til að afrita okkur sjálf er því líklega ein stærsta ógnin af gervigreindinni. Þessi freisting getur nefnilega á undraskömmum tíma valdið því að við glötum stjórn á eigin lífi, missum sjónar á því hver við erum. 

Ábyrgðin liggur hjá okkur sjálfum

Litlar sem engar líkur eru á að löggjöf eða reglugerðir muni hindra þessa þróun. Tæknin er komin til að vera, freistingin til að nota hana er of sterk, þörfin of rík til að við látum það eiga sig. Þeim sem ná að nýta sér þessa möguleika markvisst mun farnast betur, rétt eins og þeim sem ná að nýta sér önnur tækifæri til að auka eigin hæfni og afköst sem gervigreindin býður upp á. En verði ekkert að gert er ljóst að sá hópur verður miklu stærri sem fer hallloka, þau sem glata stjórn á eigin lífi og renna saman við eftirlíkingarnar, ekki aðeins í augum annarra, heldur einnig gagnvart sjálfum sér.

Nýju mállíkönin eru eðlisólík öllum öðrum tækninýjungum. Þessi sérstaða grundvallast á hæfileika þeirra til að beita tungumálinu og læra af og líkja eftir lifandi fólki. Afleiðingarnar eru okkur flestum enn aðeins að litlu leyti ljósar. Við munum nýta okkur þessa tækni, því gerum við það ekki drögumst við aftur úr öðrum. Um leið er hættan á því að við missum stjórn á eigin lífi raunveruleg. Enginn getur hindrað það nema við sjálf. Til þess verðum við að þekkja tæknina og tækifærin og ógnirnar sem henni fylgja. En það nægir ekki eitt og sér. Til að halda stjórninni verðum við að styrkja markvisst okkar eigin meðvitund um hvað skiptir okkur máli og okkar eigin getu til að hugsa skýrt. Og við verðum að hefjast handa strax.

Comments

No comments yet. Why don’t you start the discussion?

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *