Þingsályktun um aðgerðir gegn hatursorðræðu er gróf aðför að tjáningarfrelsinu

Í janúar sl. skilaði stjórn Málfrelsis – samtaka um frjálsa og opna umræðu, lýðræði og mannréttindi, inn umsögn í Samráðsgátt um þingsályktunartillögu forsætisráðherra um aðgerðir gegn hatursorðræðu.

Umrætt mál er nú komið til Allsherjar- og menntamálanefndar þingsins og hefur umsögn félagsins verið send nefndinni. Það gekk raunar ekki alveg þrautalaust, kannski meira um það síðar.

Þetta mál er að mati stjórnar félagsins gróf tilraun til að skerða málfrelsi og mismuna þegnum landsins. Í umsögn segir meðal annars:

Stjórnarskráin miðar í stuttu máli að því að verja hið dýrmæta frelsi með því að halda ríkisvaldinu í skefjum. Með þessu er dregið fram að grundvöllur frjáls samfélags er fólginn í sjálfsákvörðunarrétti borgaranna. Grunneiningin í slíku samfélagi er hinn frjálsi einstaklingur. Göfugasta hlutverk laga í slíku ríki er að verja rétt fólks til að hugsa, til að efast, til að tjá sig, þvingunarlaust og á grundvelli frjálsrar samvisku. Stjórnarskrá lýðveldisins er, eins og aðrar vestrænar stjórnarskrár, sömuleiðis reist á þeirri undirstöðu að öll séum við jöfn fyrir lögunum og að lögin taki jafnt til allra.

Umsögn þessi er rituð til að minna á að upptök valdsins eru hjá fólkinu sem landið byggir. Ríkisstjórn, lögregla og aðrir embættismenn sækja umboð sitt þangað. Af því leiðir að valdhöfum eru takmörk sett hvað viðvíkur viðleitni til valdbeitingar sem fer í bága við þær frelsisundirstöður sem áður voru nefndar.  

Ritskoðunarbann 73. gr. stjskr. leiðir t.a.m. af sér að útgáfa rita er ekki háð skilyrði opinbers leyfis eða yfirlestrar. Hvorki lögregla né aðrar opinberar stofnanir mega leiðast í þann farveg að taka upp slíka starfshætti eða eftirlit. Lögreglumenn eru borgarar í einkennisbúningum. Þeim ber, eins og öðrum íbúum landsins, að virða stjórnarskrá landsins og landslög í störfum sínum og framgöngu.

Félagið minnir jafnframt á að í greinargerð með tillögunni kemur fram að engin skilgreining er einu sinni til á hugtakinu hatursorðræða og því verið að leggja til að Alþingi framselji vald sitt til verktaka úti í bæ, sem enginn veit hverjir verða:

Með öðrum orðum er hér verið að leggja fram áætlun um aðgerðir gegn óskilgreindu vandamáli. Hvergi er heldur að sjá að sýnt hafi verið fram á að vandamálið sé yfirleitt til staðar, né að nein tilraun hafi verið gerð til að grafast fyrir um orsakir þess. Tilvitnuð orð ættu að nægja Alþingi til að viðhafa fulla aðgát hvað viðvíkur efni þingsályktunartillögunnar. Vandséð er hvernig samþykkja má aðgerðaáætlun og fjárútlát á svo óljósum grunni. Verði áætlunin samþykkt og hrint í framkvæmd merkir það einnig að ókjörnum embættismönnum og/eða verktökum er falið að framkvæma hana, og þar sem skilgreiningu vandamálsins vantar, að skilgreina það einnig. Með því myndi Alþingi framselja vald til ákvarðana sem geta haft réttaráhrif til aðila sem ekki er ætlað að fara með slíkt vald. Þessi skortur á skilgreiningu vandamálsins er nægjanleg ástæða til að Alþingi hafni umræddri þingsályktunartillögu.

Í umsögninni er bent á þá hættu á mismunun sem kann að leiða af aðgerðum sem sérstaklega beinast að vernd tiltekinna hópa, en ekki annarra, og minnt á hvernig hatursorðræða gagnvart tilteknum hópi fólks fékk að grassera óhindrað fyrir skömmu síðan. Lítið fór fyrir áhyggjum forsætisráðherra af hatursorðræðu þá:

Með vísan til þess sem áður segir um jafnræði allra fyrir lögunum er af hálfu samtakanna á það bent að í greinargerð með tillögunni eru tilgreindir sérstaklega ákveðnir hópar sem ekki megi beita hatursorðræðu gegn. Í ljósi reynslunnar má slík framsetning heita uggvænleg, því með gagnályktun má ætla að aðrir njóti ekki slíkrar verndar. Reynsla síðustu ára hefur afhjúpað hættuna á að þær áherslur sem hér um ræðir leiði í framkvæmd til varhugaverðrar mismununar. Sem dæmi má nefna að þeir sem af ýmsum ástæðum kusu að þiggja ekki sprautu með svonefndum Covid-19 bóluefnum máttu sitja undir orðræðu af ætt mismununarstefnu og aðskilnaðar, sem talin hefði verið dæmi um hatursorðræðu ef henni hefði verið beint að þeim hópum sem tilgreindir eru í greinargerðinni. Þann 26. nóvember 2021 krafðist Kári Stefánsson, einn helsti álitsgjafi og ráðgjafi stjórnvalda í kórónuveirufaraldrinum þess að fólk sem hafnaði bólusetningu yrði innilokað á heimilum sínum til æviloka[1]

Eitt versta dæmið var leiðari Sigmundar Ernis Rúnarssonar í Fréttablaðinu 13. nóvember 2021 „Herkvíin“, þar sem hvatt var til mismununar og frelsisskerðinga gagnvart óbólusettum.[2] 

Jafnvel forseti Íslands gaf í skyn í þingsetningarræðu árið 2021 að þeir sem ekki þáðu bólusetningu væru að krefjast þess er hann kallaði „rangsnúinn rétt til að smita aðra“.[3] Forseti hefur aldrei beðist opinberlega afsökunar á þessum ummælum. Fleiri urðu uppvísir að sambærilegri orðræðu, meðal annars ýmsir forystumenn í atvinnulífinu. Í desember 2021 lagði sóttvarnalæknir til að börnum yrði mismunað á grunni þess hversu marga skammta bóluefnis gegn Covid-19 þau hefðu fengið.[4] Á þeim tíma, er ummæli þessara aðila komu fram, var þó löngu ljóst að hinar umræddu bólusetningar væru með engum hætti til þess fallnar að koma í veg fyrir smit í samfélaginu[5], og það staðfesti raunar þáverandi sóttvarnalæknir strax sumarið 2021.[6] Hatursfull ummæli og hótanir þessara aðila byggðu því á röngum upplýsingum, sem yfirvöld dreifðu. Hvergi í áætluninni er fjallað um aðgerðir til að stemma stigu við hatursorðræðu sem runnin er undan rifjum stjórnvalda eða embættismanna á þeirra vegum.

Af framangreindu er ekki órökrétt að draga þá ályktun að borgarar landsins standi misvel frammi fyrir lögunum hvað viðvíkur ætlaðri hatursorðræðu. Með öðrum orðum gefa framangreind dæmi tilefni til að hafa rökstuddar áhyggjur af því að sá „fjölbreytileiki“ sem vegsamaður er í þingsályktunartillögunni taki ekki til fjölbreytileika í skoðunum, lífsviðhorfum og möguleikum manna til að fá að synda gegn straumi samtímans á grundvelli samvisku sinnar og sannfæringar. Framangreintddæmi veita vísbendingu um að verndarlínan kunni aðeins að vera dregin um þá sem njóta velvildar stjórnvalda. Slíkt er ótækt í samfélagi sem kenna vill sig við mannúð og umburðarlyndi. Með því að vernda sérstaklega ákveðna hópa eða einstaklinga gegn hatursorðræðu, en aðra ekki, er 65. grein stjórnarskrár lýðveldisins Íslands brotin, en samkvæmt henni er skýrt að allir skuli vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda í hvívetna.

Í stuttu máli lúta athugasemdir Málfrelsis að því að títtnefnd þingsályktun feli í sér lymskulega aðför að tjáningarfrelsinu, þar sem verið er að þrengja ramma leyfilegrar umræðu. Samtökin benda á að þegar er til staðar meiðyrðalöggjöf í landinu og að einstaklingar geta leitað réttar síns á grunni hennar. Þingsályktunartillagan felur hins vegar í sér viðleitni til að búa til opinbera stefnu um hvað megi hugsa, segja og skrifa. Allt sem falli utan þess ramma sé óleyfilegt. Slík ráðagerð er óheilbrigð. Alþingi á að standa gegn hvers kyns valdboðsstefnu og tilraunum valdhafa til að skilgreina sannleikann. Frelsi til að gagnrýna, efast, skora ríkjandi viðhorf á hólm, krefjast endurskoðunar og mótmæla er líftaug lýðræðis, vísindastarfs og borgaralegs frelsis. Leggja ber áherslu á að íbúar landsins njóti frelsis til að fá að nálgast mál frá mismunandi sjónarhólum, án þöggunar, án ritskoðunar. Verði sá rammi ekki varinn mun hann þrengjast. Sú þróun mun valda þrengingum á öllum sviðum mannlífsins. Lýðræðið deyr í þögn. Einræði fæðist í þögn.

Stjórn Málfrelsis leggur til að þingsályktunartillaga forsætisráðherra um aðgerðaáætlun gegn hatursorðræðu verði dregin til baka.

Umsögnina í heild má sjá hér.


[1] https://www.mbl.is/frettir/innlent/2021/11/26/telur_mikilvaegt_ad_born_verdi_bolusett/?fbclid=IwAR0ybobhW-tgsvvRNKYshxS6ipFaPztdGNEc0mlObRNYKR3UXWr7uEDd3DY

[2] Sjá: https://www.frettabladid.is/skodun/herkviin/ (Skoðað 21.1.2023).

[3] https://www.visir.is/g/20212186932d

[4] https://www.stjornarradid.is/library/04-Raduneytin/Heilbrigdisraduneytid/ymsar-skrar/Minnisblad-innanlands04122021.pdf

[5] https://www.dailymail.co.uk/health/article-9018547/Pfizer-CEO-not-certain-covid-shot-prevents-transmission.html

[6] https://www.visir.is/k/1418b518-4964-4bcb-b1ab-dd0d2b287ee5-1628418981236

Comments

No comments yet. Why don’t you start the discussion?

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *