Fundur um innflytjendamál laugardaginn 20. september

Er stjórnleysi á landamærunum að valda neyðarástandi á Íslandi?

  • Eru grunnkerfi velferðarsamfélagsins að hrynja vegna óhóflegs fjölda innflytjenda?
  • Er íslenskri menningu ógnað af útlendingum með önnur gildi?
  • Fara fordómar gegn útlendingum vaxandi á Íslandi?
  • Er lýðræðissamfélagið og grundvallarmannréttindi í hættu?
  • Hvar liggja mörk eðlilegs tjáningarfrelsis og hatursorðræðu?

Þessar spurningar og fleiri verða ræddar á fundi Málfrelsis – samtaka um frjálsa og opna umræðu, lýðræði og mannréttindi sem haldinn verður í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands kl. 13-15 laugardaginn 20. september.

Framsögumenn verða:

  • Svala Magnea Ásdísardóttir, fjölmiðlafræðingur og formaður Málfrelsis
  • Þórarinn Hjartarson, stjórnandi hlaðvarpsins “Ein pæling”
  • Helga Vala Helgadóttir, lögmaður og fyrrum þingmaður
  • Sóley Lóa Smáradóttir, menntaskólanemi

Að erindum loknum verða pallborðsumræður með fulltrúum stjórnmálaflokka sem sæti eiga á Alþingi. Í pallborðinu verður meðal annars rætt um hvað stjórnmálafólk getur gert til að stuðla að samfélagslegri samheldni á tímum þegar ágreiningur um innflytjendamál og vantraust í garð stjórnvalda fer vaxandi.

Fundinum stýrir Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur.

Comments

No comments yet. Why don’t you start the discussion?

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *