
Er stjórnleysi á landamærunum að valda neyðarástandi á Íslandi?
- Eru grunnkerfi velferðarsamfélagsins að hrynja vegna óhóflegs fjölda innflytjenda?
- Er íslenskri menningu ógnað af útlendingum með önnur gildi?
- Fara fordómar gegn útlendingum vaxandi á Íslandi?
- Er lýðræðissamfélagið og grundvallarmannréttindi í hættu?
- Hvar liggja mörk eðlilegs tjáningarfrelsis og hatursorðræðu?
Þessar spurningar og fleiri verða ræddar á fundi Málfrelsis – samtaka um frjálsa og opna umræðu, lýðræði og mannréttindi sem haldinn verður í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands kl. 13-15 laugardaginn 20. september.
Framsögumenn verða:
- Svala Magnea Ásdísardóttir, fjölmiðlafræðingur og formaður Málfrelsis
- Þórarinn Hjartarson, stjórnandi hlaðvarpsins “Ein pæling”
- Helga Vala Helgadóttir, lögmaður og fyrrum þingmaður
- Sóley Lóa Smáradóttir, menntaskólanemi
Að erindum loknum verða pallborðsumræður með fulltrúum stjórnmálaflokka sem sæti eiga á Alþingi. Í pallborðinu verður meðal annars rætt um hvað stjórnmálafólk getur gert til að stuðla að samfélagslegri samheldni á tímum þegar ágreiningur um innflytjendamál og vantraust í garð stjórnvalda fer vaxandi.
Fundinum stýrir Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur.
