Tjáningarfrelsi, vald og “woke”

Málfrelsi – samtök um frjálsa og opna umræðu, lýðræði og mannréttindi, efna til málfundar þriðjudaginn 14. febrúar. Fundurinn verður haldinn á Húrra, Tryggvagötu 22 (gengið inn Naustamegin) kl. 20.

Þorsteinn Siglaugsson, formaður Málfrelsis, fjallar um sjálfsmyndarstjórnmál, „woke“ hugmyndafræði og einkenni hennar og hvernig misbeiting hennar vegur að tjáningarfrelsinu og lýðræðinu.

Iva Adrichem fjallar um reynslu sína af útilokun og þöggun í íslensku samfélagi.

Að erindum loknum verða opnar umræður sem Baldur Benjamín Sveinsson, stjórnarmaður í Málfrelsi stýrir.

Viðburðinum verður streymt á síðu Krossgatna á Facebook.

1 Comment

  1. Bookmarked, so I can continuously check on new posts! If you need some details about Thai-Massage, you might want to take a look at YK3 Keep on posting!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *