Eftir tæplega tvö ár af takmörkunum og frelsisskerðingu eru margir farnir að sýna merki langþreytu. Fólk venst aðgerðunum og fær æ róttækari hugmyndir um hvernig megi hefta útbreiðslu veirunnar og draga úr álagi af heilbrigðiskerfinu, í von um að endurheimta eðlilegt líf – fyrir sig sjálft.
Nýlega hafa heyrst raddir um að hérlendis verði tekin upp mismununarstefna í formi svokallaðra bóluefnapassa. Bóluefnapassar afnema jafnréttisregluna, sem er ein undirstaða vestræns samfélags. Þeim er ætlað að kúga fólk til að þiggja lyf gegn eigin samvisku, og grafa þannig undan frelsi fólks til að ráða yfir eigin líkama og heilsu. Þeir eru notaðir til að skerða rétt fólks til að afla sér menntunar og vinna fyrir fjölskyldu sinni. Allt þetta vegna veiru sem er nú með dánartíðni um eða undir 0,1%.
Talsmenn stefnunnar halda því fram að óbólusettir séu líklegri til að smitast, bera smit, leggjast inn á spítala og dvelji þar lengur að jafnaði. Þeir trúa því að passarnir leysi þessi vandamál. Vert er að staldra við og spyrja sig hvort þessar forsendur séu réttar og byggðar á traustum vísindalegum grunni.
Eru óbólusettir líklegri til að smitast?
Talsmenn bóluefnapassa halda því iðulega fram að óbólusettir séu þrefalt líklegri til að smitast en sóttvarnalæknir hefur talað um að bólusettir séu 50% ólíklegri til að smitast. Hvort er rétt?
Raunin er sú að engin hágæða rannsókn (slembiröðuð íhlutunarrannsókn) hefur metið vörn bóluefnanna gegn einkennalausu smiti. Það finnast því engin áreiðanleg gögn sem styðja staðhæfingar um að óbólusettir séu líklegri til að smitast af COVID-19.
Staðhæfingar um vörn bóluefnanna gegn einkennalausu smiti byggja á gögnum úr skimun og athugunarrannsóknum sem byggðar eru á þeim gögnum. Ýmsir þættir geta haft áhrif á niðurstöður bæði úr skimun og athugunarrannsóknum, svo slíkar rannsóknir geta ekki framkallað vísbendingar í háum gæðaflokki.
Fjöldi athugunarrannsókna hefur leitt í ljós að vörn bóluefna við C19 dvínar með tímanum. Rannsókn frá Qatar, birt í læknatímaritinu NEJM, gaf til kynna að vörn gegn smiti 5 mánuðum eftir annan skammt sé einungis 20% (Chemaitelly et al, Oct 2021). Rannsókn frá Svíþjóð sem læknatímaritið Lancet er að ritrýna gefur til kynna að vörn gegn smiti með einkennum sé 40% hálfu ári eftir annan skammt og sé alveg horfin þremur mánuðum síðar (Nordström et al, Oct 2021). Þannig er vissulega útlit fyrir að vörn gegn einkennalausu smiti sé einhver til að byrja með, en óvissan er mikil vegna utanaðkomandi þátta sem hafa áhrif á þessar niðurstöður.
Rannsókn í Lancet sýndi t.d. að 38% óbólusettra smituðust heimilisfólki sínu, en aðeins 25% bólusettra smituðust (Singanayagam et al, Oct 2021). Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna birti rannsókn í sumar sem sýndi að 74% smita hafi verið meðal bólusettra þótt aðeins 69% fólks hafi verið bólusett (Brown et al, Aug 2021). Rannsóknin dró vörn bóluefnanna við smiti verulega í efa.
Er réttmætt að kenna óbólusettum um faraldurinn þegar virkni bóluefnanna er svona óljós?
Eru óbólusettir líklegri til að dreifa smitum?
Bólusettir eru ólíklegri til að finna fyrir C19 einkennum og þannig eykst hættan á að þeir smiti aðra óafvitandi.
Fjöldi rannsókna bendir til að veirumagn sé ekki minna í smituðum bólusettum einstaklingum þótt þeir séu oft með minni einkenni en óbólusettir (Alexander, Oct 2021). Bóluefni sem fela einkenni en draga ekki úr smiti geta þannig aukið útbreiðslu veirunnar. Áðurnefnd rannsókn í Lancet sýndi að 25% bólusettra en aðeins 23% óbólusettra hafi smitað heimilisfólk sitt. Mörg dæmi eru um að bólusettir hafi smitað marga jafnvel í fullbólusettum hópum.
Dregur útbreidd bólusetning úr smitum?
Ætla mætti að minna væri um C19 smit á þeim svæðum þar sem bólusetningarhlutfall er hátt en svo virðist ekki vera. Nýleg rannsókn sýnir að slík fylgni er ekki til staðar (Subramanian & Kumar, Sept 2021). Smit voru jafnvel tíðari þar sem hlutfall bólusetninga var hátt.
Ástæðan gæti verið sú að bólusettir fari síður varlega því þeir telji sig vel varða fyrir smiti, og þegar þeir sýkjast séu þeir ólíklegri til að finna fyrir einkennum, gæti sín því síður og dreifi smiti í meira mæli.
Eru óbólusettir byrði á heilbrigðiskerfinu?
Margt bendir til þess að bóluefnin veiti vörn gegn alvarlegum veikindum. Bólusetning óbólusettra gæti sennilega hlíft okkur fyrir nokkrum innlögnum á næstu mánuðum. Að vera óbólusettur veldur hins vegar ekki endilega meira álagi á heilbrigðiskerfið en aðrir áhættuþættir svo sem aldur og undirliggjandi sjúkdómar. Ef það ætti að mismuna fólki á þeim grundvelli að það sé baggi á heilbrigðiskerfinu er erfitt að sjá hvert það myndi leiða. Ætti að nota sömu rök til að mismuna fólki sem er í áhættuhópi vegna lífstílssjúkdóma? Betri leið er að efla heilbrigðiskerfið svo það geti sinnt hlutverki sínu án þess að mismuna borgurunum.
Skila bóluefnapassar árangri?
Reynsla annarra þjóða sýnir að það að beina harðari sóttvarnaraðgerðum að óbólusettum hefur ekki spornað við útbreiðslu og álagi. Bóluefnapassar hafa hins vegar orðið tilefni til fjöldamótmæla í mörgum borgum og dregið úr trausti á stjórnvöldum.
Það er lítið til af vönduðum rannsóknum um virkni bóluefnapassa, en ein óritrýnd rannsókn bendir til þess að upptaka bóluefnapassa dragi ekki úr tíðni smita (Prosser & Streiner, 2021). Ekkert bendir til að þátttaka í bólusetningu sé meiri þar sem bóluefnapassar eru í notkun. Tvær rannsóknir gefa til kynna að bóluefnapassar dragi úr vilja fólks til að láta bólusetja sig og dragi almennt úr trausti á heilbrigðisyfirvöldum – enda eiga neikvæðir hvatar það til að hafa öfug áhrif (Figueiredo et al, Oct 2021; Porat et al, Aug 2021) . Ástandið hefur ekki batnað í þeim löndum sem hafa farið þessa leið.
Ástandið er hins vegar betra hjá þeim ríkjum sem hafa kosið að fylgja sjálfbærri stefnu í sóttvörnum. Það er að efla heilbrigðiskerfin, beita snemm-meðferð, vernda viðkvæma hópa og leyfa fólki að lifa óröskuðu lífi. Á Vesturlöndum eru helstu dæmin Flórída, Texas og fleiri ríki í Bandaríkjunum, sem og Svíþjóð. Sænsk stjórnvöld ákváðu hins vegar nýlega að taka upp bóluefnapassa, þvert á ráðleggingar sóttvarnalæknis þar í landi(Tegnell, Nov 2021). Það virðist því hafa verið pólitísk ákvörðun, ekki byggð á vísindum.
Lágmörkum skaðann
Þegar uppi er staðið viljum við geta horft til baka og verið stolt af því hvernig við tókumst á við þetta. Stolt af því að hafa ekki gengið eins langt og önnur lönd í frelsissviptingum og mannréttindabrotum. Stolt af því að hafa sýnt samstöðu og umburðarlyndi, frekar en að snúast gegn hvert öðru. Stolt af því að hafa látið rökin og vísindin ráða aðgerðum, frekar en að herma í blindni eftir öðrum löndum. Fyrr eða síðar munu flestir sennilega smitast, bæði bólusettir og óbólusettir. Náttúrulegt ónæmi mun veita síðari hópnum góða vörn gegn endursmiti. Faraldurinn mun taka enda, en skaðinn af óhóflegum aðgerðum gæti fylgt okkur til komandi ára. Reynum að lágmarka þann skaða.
Heimildir
Hiam Chemaitelly, M.Sc.,Patrick Tang, M.D., Ph.D.,Mohammad R. Hasan, Ph.D.,Sawsan AlMukdad, M.Sc.,Hadi M. Yassine, Ph.D.,Fatiha M. Benslimane, Ph.D.,Hebah A. Al Khatib, Ph.D.,Peter Coyle, M.D.,Houssein H. Ayoub, Ph.D.,Zaina Al Kanaani, Ph.D.,Einas Al Kuwari, M.D.,Andrew Jeremijenko, M.D.,Anvar H. Kaleeckal, M.Sc.,Ali N. Latif, M.D.,Riyazuddin M. Shaik, M.Sc.,Hanan F. Abdul Rahim, Ph.D.,Gheyath K. Nasrallah, Ph.D.,Mohamed G. Al Kuwari, M.D.,Hamad E. Al Romaihi, M.D.,Adeel A. Butt, M.B., B.S.,Mohamed H. Al-Thani, M.D.,Abdullatif Al Khal, M.D.,Roberto Bertollini, M.D., M.P.H.,and Laith J. Abu-Raddad, Ph.D. et al. Waning of BNT162b2 Vaccine Protection against SARS-CoV-2 Infection in Qatar. New England Journal of Medicine, 6 Oct 2021. https://www.nejm.org/doi/10.1056/NEJMoa2114114.
Peter Nordström, Marcel Ballin, Anna Nordström. Effectiveness of Covid-19 Vaccination Against Risk of Symptomatic Infection, Hospitalization, and Death Up to 9 Months: A Swedish Total-Population Cohort Study. Preprints with the Lancet, 25 Oct 2021. https://papers.ssrn.com/sol3/papers.cfm?abstract_id=3949410.
Anika Singanayagam PhD, Seran Hakki PhD, Jake Dunning PhD, Kieran J Madon MSc, Michael A Crone MBBCh, Aleksandra Koycheva BSc, Nieves Derqui-Fernandez MSc, Jack L Barnett MPhys, Michael G Whitfield PhD, Robert Varro MSc, Andre Charlett PhD, Rhia Kundu PhD, Joe Fenn PhD, Jessica Cutajar BSc, Valerie Quinn BSc, Emily Conibear MSc, Prof Wendy Barclay PhD, Prof Paul S Freemont PhD, Prof Graham P Taylor DSc, Shazaad Ahmad FRCPath, Prof Maria Zambon FRCPath, Prof Neil M Ferguson DPhil, Prof Ajit Lalvani. Community transmission and viral load kinetics of the SARS-CoV-2 delta (B.1.617.2) variant in vaccinated and unvaccinated individuals in the UK: a prospective, longitudinal, cohort study. Lancet Infectious Diseases, 29 Oct, 2021. https://www.thelancet.com/journals/laninf/article/PIIS1473-3099(21)00648-4/fulltext.
Catherine M. Brown; Johanna Vostok, MPH; Hillary Johnson, MHS; Meagan Burns, MPH1; Radhika Gharpure, DVM; Samira Sami, DrPH; Rebecca T. Sabo, MPH; Noemi Hall, PhD; Anne Foreman, PhD; Petra L. Schubert, MPH; Glen R. Gallagher, PhD; Timelia Fink; Lawrence C. Madoff, MD; Stacey B. Gabriel, PhD; Bronwyn MacInnis, PhD; Daniel J. Park, PhD; Katherine J. Siddle, PhD; Vaira Harik, MS; Deirdre Arvidson, MSN; Taylor Brock-Fisher, MSc; Molly Dunn, DVM; Amanda Kearns; A. Scott Laney, PhD. Outbreak of SARS-CoV-2 Infections, Including COVID-19 Vaccine Breakthrough Infections, Associated with Large Public Gatherings — Barnstable County, Massachusetts, July 2021. Morbidity and Mortality Weekly Report, 6 August 2021. https://www.cdc.gov/mmwr/volumes/70/wr/mm7031e2.htm.
Dr. Paul Elias Alexander. 30 Studies on Vaccine Efficacy that Raise Doubts on Vaccine Mandates. Brownstone Institute, 28 Oct 2021. https://brownstone.org/articles/16-studies-on-vaccine-efficacy/.
S V Subramanian, Akhil Kumar. Increases in COVID-19 are unrelated to levels of vaccination across 68 countries and 2947 counties in the United States. European Journal of Epidemiology, 30 Sept 2021. https://link.springer.com/article/10.1007/s10654-021-00808-7.
Aaron Prosser, David L. Streiner. A study of the benefits of vaccine mandates and vaccine passports for SARS-CoV-2. Preprint. https://www.medrxiv.org/content/10.1101/2021.11.10.21266188v1.
Alexandre de Figueiredo, Heidi J Larson, Stephen Reicher. The potential impact of vaccine passports on inclination to accept COVID-19 vaccinations in the United Kingdom: evidence from a large cross-sectional survey and modelling study. EClinicalMedicine, Volume 40, Oct 2021. https://www.sciencedirect.com/science/article/pii/S2589537021003898.
Talya Porat, Ryan Burnell, Rafael A. Calvo, Elizabeth Ford, Priya Paudyal, Weston L. Baxter, Avi Parush. “Vaccine Passports” May Backfire: Findings from a Cross-Sectional Study in the UK and Israel on Willingness to Get Vaccinated against COVID-19. MDPI Vaccines, 14 August 2021. https://www.mdpi.com/2076-393X/9/8/902.
Dr. Anders Tegnell. Bristande forskning kring vaccinbevis (Íslenska: Skortur á rannsóknum um bóluefnisvottorð). Sverige Radio, 19 Nov 2021. https://sverigesradio.se/artikel/bristande-forskning-kring-vaccinbevis.
Greinin var skrifuð í samstarfi við Dr. Jón Ívar Einarsson, lækni, lýðheilsufræðing og prófessor við læknadeild Harvard-háskóla. Hún birtist upprunalega í Morgunblaðinu 30. nóvember 2021 og á Kofid.is í kjölfarið.